Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 304/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 304/2023

Fimmtudaginn 17. ágúst 2023

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 14. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. júní 2023, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði húsnæðisbætur á árinu 2022. Með bréfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. júní 2023, var kæranda birt lokauppgjör vegna ársins 2022 þar sem fram kom að hún hefði fengið ofgreiddar húsnæðisbætur, að fjárhæð 74.960 kr.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 14. júní 2023. Með bréfi, dags. 16. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst 29. júní 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 3. júlí 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi hækkaði í tekjum á síðustu mánuðum ársins 2022 því hún hafi tekið að sér aukavinnur. Sú staðreynd geri tekjur kæranda fyrr á árinu ekki hærri. Um leið og tekjur kæranda hafi hækkað hafi húsnæðisbætur verið teknar af henni þannig að hún hafi ekki verið að fá bætur eftir launahækkun. Að mati kæranda sé gjörsamlega fráleitt að meta tekjurnar yfir allt síðast árið og senda svo endurgreiðslukröfu tæpu ári síðar. Kærandi hefði ekki getað staðið undir húsnæðiskostnaði fyrr á árinu 2022 án húsnæðisbóta. Þá sjái kærandi ekki fram á að geta staðið undir þessum kostnaði núna. Hún sé einstæð móðir á leigumarkaði í tveimur til þremur vinnum til þess að geta staðið undir húsnæðiskostnaði. Kærandi mótmæli þessari ráðstöfun og krefjist þess að reikningurinn verði lækkaður eða felldur niður.

III.  Sjónarmið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Í greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að kærandi hafi skilað inn umsókn um húsnæðisbætur þann 18. febrúar 2020 vegna leigu á húsnæðinu B. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 26. febrúar 2020.

Bréf vegna endurreiknings húsnæðisbóta hafi ítrekað verið send kæranda síðan umsóknin hafi verið samþykkt árið 2020 eða í 10 skipti. Árið 2022 hafi bréf vegna endurreiknings verið send kæranda þann 25. janúar, 21. apríl og þann 26. júní. Endurreikningsbréf geymi uppfærða tekju- og eignaáætlun sem sé byggð á nýjustu fyrirliggjandi upplýsingum frá Skattinum og taki mið af heildartekjum, þar með talið fjármagnstekjum, heildareignum, ásamt orlofs- og desemberuppbótum. Kæranda hafi verið veitt færi á því í framangreindu bréfum að koma að athugasemdum ef hún teldi þær upplýsingar sem notaðar væru við útreikning húsnæðisbóta ekki endurspegla væntanlegar tekjur og eignir ársins 2022. Engar athugasemdir hafi borist stofnuninni frá kæranda í kjölfar áætlana.

Þann 18. október 2022 hafi kæranda verið sent bréf þar sem fram komi að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefði fjallað um rétt hennar til húsnæðisbóta og frestað afgreiðslu umsóknar þar sem tekjur og/eða eignir væru farnar að skerða húsnæðisbætur að fullu. Engar athugasemdir, upplýsingar eða gögn hafi borist í kjölfarið og því hafi umsókn um húsnæðisbætur verið hafnað á þeirri forsendu að tekjur kæranda væru farnar að skerða bætur að fullu. Engar athugasemdir hafi borist í kjölfar synjunar.

Þann 1. júní 2023 hafi kæranda verið birt lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2022. Í bréfinu komi fram að eftir endurreikning húsnæðisbóta hafi komið í ljós að kærandi hefði á tímabilinu fengið ofgreiddar húsnæðisbætur sem næmu 74.960 kr.

Í máli þessu sé deilt um lokauppgjör húsnæðisbóta vegna ársins 2022. Samkvæmt niðurstöðu lokauppgjörs hafi kærandi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur árið 2022 vegna tekna. Samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur megi endurskoða rétt til húsnæðisbóta hvenær sem er og endurreikna fjárhæð þeirra þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem hafi orðið á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. 25. gr. komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. laga um húsnæðisbætur liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga.

Í athugasemdum við 25. gr. frumvarpsins segi einnig að gert sé ráð fyrir að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun jafni áætluðum heildargreiðslum ársins á alla mánuði almanaksársins, eða eftir atvikum þá mánuði sem veiti rétt til húsnæðisbóta. Leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbætur samkvæmt 26. gr. en þar komi fram að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum hafi borið á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd.

Í 17. gr. laga um húsnæðisbætur sé fjallað um áhrif tekna á grunnfjárhæðir húsnæðisbóta og frítekjumörk bóta miðað við árstekjur. Frítekjumörk miðað við tvo heimilismenn hafi verið 6.285.838 kr. fyrir árið 2022, sbr. 14. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, með síðari breytingum. Við lög um húsnæðisbætur hafi bæst við ákvæði til bráðabirgða þar sem gert hafi verið ráð fyrir því að frítekjumörk miðað við tvo heimilismenn árið 2022 væru 6.474.408 kr. og það hafi gilt afturvirkt frá 1. janúar 2022. Í máli þessu liggi fyrir miðað við upplýsingar frá Skattinum að heildartekjur kæranda hafi verið samtals 10.119.715 kr. fyrir árið 2022.

Í endurreikningsbréfum sé athygli vakin á því að það sé á ábyrgð umsækjanda að upplýsa stofnunina um allar þær breytingar sem verði á aðstæðum viðkomandi sem kunni að hafa áhrif á rétt til húsnæðisbóta, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga um húsnæðisbætur. Í endurreikningsbréfum sé einnig vakin athygli á því að ef í ljós komi að umsækjandi hafi fengið ofgreiddar húsnæðisbætur beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið og gera tilhögun um endurgreiðslu, sbr. 26. gr. laganna og 22. gr. reglugerðarinnar.

Kærandi hafi ekki upplýst stofnunina um breytingar sem hafi orðið á tekjum á tímabilinu og í ljósi þess þurfi kærandi að bera hallann af því að hafa ekki sinnt upplýsingarskyldu sinni í samræmi við fyrrnefnda 3. mgr. 14. gr. laganna.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun krefjist þess að hin kærða ákvörðun stofnunarinnar í málinu verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. júní 2023, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta vegna ársins 2022, að fjárhæð 74.960 kr.

Í 8. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur kemur fram að húsnæðisbætur séu mánaðarlegar greiðslur sem greiðast til umsækjanda, sbr. þó 4. mgr. 21. gr., og skuli ákvarðaðar og reiknaðar út miðað við grunnfjárhæðir sem miðast við fjölda heimilismanna, sbr. 3. tölul. 3. gr., að teknu tilliti til tekna, sbr. 17. gr., eigna, sbr. 18. gr., og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði, sbr. 19. gr. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 75/2016 er umsækjanda skylt að veita framkvæmdaraðila allar þær upplýsingar og gögn þeim til staðfestingar sem óskað er eftir og nauðsynlegar eru til að staðreyna rétt hans til húsnæðisbóta. Enn fremur er skylt að upplýsa um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans eða heimilismanna eða öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á rétt viðkomandi til húsnæðisbóta samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann fær greiddar húsnæðisbætur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um meðal annars tekjubreytingar á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 25. gr. laganna er kveðið á um endurreikning á húsnæðisbótum. Þar segir í 1. mgr. að rétt til húsnæðisbóta megi endurskoða hvenær sem er og endurreikna fjárhæð húsnæðisbóta þannig að húsnæðisbætur verði í samræmi við þær breytingar sem orðið hafa á aðstæðum umsækjanda eða annarra heimilismanna. Í 2. mgr. kemur fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur og eignir næstliðins almanaksárs samkvæmt 17. og 18. gr. liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli framkvæmdaraðili endurreikna fjárhæðir húsnæðisbóta vegna þess almanaksárs á grundvelli þeirra upplýsinga. Í 3. mgr. kemur fram að leiði endurreikningur samkvæmt 1. og 2. mgr. til breytinga á fjárhæð húsnæðisbóta skuli leiðrétta húsnæðisbæturnar samkvæmt 26. gr. laganna. Þar segir í 1. mgr. að hafi umsækjandi fengið hærri húsnæðisbætur en honum bar á umræddu tímabili beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.

Kærandi þáði húsnæðisbætur á tímabilinu janúar til september 2022. Samkvæmt tekjuáætlunum, sem lagðar voru til grundvallar við útreikning húsnæðisbóta á árinu 2022, voru heildartekjur kæranda áætlaðar ýmist 702.826 kr., 698.304 kr. og 717.012 kr. þessa mánuði. Við lokauppgjör ársins 2022 reyndust tekjur kæranda á tímabilinu vera hærri en framangreindar tekjuáætlanir gerðu ráð fyrir, eða 783.847 kr. á mánuði, og yfir frítekjumörkum 14. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur sem leiddi til ofgreiðslu að fjárhæð 74.960 kr. Kæranda ber í samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 75/2016 að endurgreiða þá fjárhæð.

Í kæru til úrskurðarnefndar fer kærandi fram á að endurkrafan verði lækkuð eða felld niður. Samkvæmt 22. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur er Húsnæðis- og mannvirkjastofnun heimilt að falla frá kröfu um endurgreiðslu að fullu eða að hluta ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi sem mæla með því, svo sem vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna umsækjanda. Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi getur lagt inn erindi til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um niðurfellingu eða lækkun kröfunnar og eftir atvikum sent nýja kæru til nefndarinnar þegar ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar liggur fyrir, sé hún ekki sátt við niðurstöðuna.    

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta til handa kæranda staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 1. júní 2023, um innheimtu ofgreiddra húsnæðisbóta A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum